Course Content
Sambönd og samskipti í forvarnarstarfi gegn kynbundnu ofbeldi
0/1
Um sambönd og samskipti
0/1
Leikir, verkefni og umræðukveikjur
0/3
Námskeiðslok
0/1
Heilbrigð sambönd og samskipti
About Lesson

Ofbeldisforvarnir og umræða um sambönd og samskipti snerta marga fleti. Hver hópur hefur misjafnar þarfir og því verður ekki allt lært af bók. Umræður og lifandi ígrundun eru mikilvægur partur af náminu. Settu af stað umræðu meðal samstarfsfélaga, ættingja, vina eða annarra um að lágmarki tvö af eftirfarandi málefnum. Nálgist spurningarnar frekar sem umræðupunkta en spurningar sem þarf að svara. Mikilvægara er að eiga innihaldsríka umræðu en að komast að svari.

Reynið að greina saman samtöl sem þið hafið áður átt tengd samböndum og samskiptum. Hvernig kom umræðan upp?

Hafa samtöl ykkar að mestu verið yfirborðsspjall eða hafið þið náð að dýpka umræðu um heilbrigð og óheilbrigð sambönd? Kom að mestu fram ein skoðun eða mismunandi sjónarhorn? Upplifið þið að það hafi verið gagnrýnin umræða og hugsun?

Umræður meðal vinnufélaga

Hvaða unglingahóp innan félagsmiðstöðvarinnar/ vinnustaðarins sjáið þið fyrir ykkur að leiða í gegnum samtöl sem þessi? Hvers vegna?

Reynið að greina nokkur umræðuefni sem gæti verið erfitt að taka í unglingahópnum ykkar, hvaða umræðu efni eru auðveldari? Eru einhver umræðuefni mikilvægari en önnur í ykkar hóp/ hópum?

Reynið að greina samtöl sem þið hafið átt áður við unglingana. Hafið þið átt djúpar umræður um sambönd eða samskipti eða hafa þær frekar verið yfirborðsspjall? Hvernig gætuð þið leitt umræðuna áfram til að ná fram meiri dýpt?