Course Content
Karlmennska og tilfinningalæsi í forvarnastarfi gegn kynbundnu ofbeldi
0/1
Um karlmennsku og tilfinningalæsi
0/1
Námskeiðslok
0/1
Karlmennska og tilfinningalæsi
About Lesson

Nú hefur þú farið í gegnum leiðarvísi að samtali um karlmennsku og tilfinningalæsi. Töluvert er til af efni um málefnið sem mikilvægt er að nýta sér í þessu samtali. Leiðarvísirinn er í raun ætlaður til stuðnings við það efni til að auðvelda þér að taka umræðuna.

Umræða um samfélagsleg málefni eins og þessi er stöðugt að þróast. Ef þú ætlar að taka þátt í eða leiða umræðu meðal unglinga er þess vegna mikilvægt að fylgjast með umræðunni eins og hún er á hverri stundu.

Hér að neðan er stuttur listi af efni sem gott er að skoða. Fyrir þetta námskeið mælumst við til þess að þú eyðir um klukkustund í að kynna þér efnið. Þú berð þó sjálf/t/ur ábyrgð á náminu þínu og ákveður hvað þú þarft að að fara í gegnum mikið af efni. Hafðu þó í huga að markmiðið er ekki að kunna eða vita allt. Stundum er alveg jafn gott að vita ekki svörin við spurningum sem upp koma svo þú og hópurinn sem þú leiðir getið komist að niðurstöðu saman gegnum umræðu og upplýsingaöflun.

Karlmennskan: þættir á stundinni

https://stundin.is/thaettir/karlmennskan/

Á vefnum sjukast.is er að finna allskonar fræðslu um:

Mýtur og staðreyndir um kynlíf, m.a. um stráka og kynlíf.

https://www.sjukast.is/content/mytur-og-stadreyndir-um-kynlif

Staðalímyndir

https://www.sjukast.is/content/stadalimyndir

Kynjahlutverk

https://www.sjukast.is/content/kynhlutverk

Skaðlega karlmennsku

https://www.sjukast.is/content/skadleg-karlmennska

og margt margt fleira

Auk þess getur þú googlað:

  • how is masculinity defined
  • how is masculinity socially constructed
  • how is masculinity itself a health risk
  • what is emotional literacy

Ef þú veist um meira efni sem þér þykir sérstaklega gott eða gagnlegt þætti okkur vænt um að þú bentir okkur og öðrum þátttakendum á það í commenti.