Course Content
Sambönd og samskipti í forvarnarstarfi gegn kynbundnu ofbeldi
0/1
Um sambönd og samskipti
0/1
Leikir, verkefni og umræðukveikjur
0/3
Námskeiðslok
0/1
Heilbrigð sambönd og samskipti
About Lesson

Nú hefur þú farið í gegnum leiðarvísi að samtali um sambönd og samskipti í forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi. Töluvert er til af efni um málefnið sem mikilvægt er að nýta sér í þessu samtali. Leiðarvísirinn er í raun ætlaður til stuðnings við það efni til að auðvelda þér að taka umræðuna.

Umræða um samfélagsleg málefni eins og þessi er stöðugt að þróast. Ef þú ætlar að taka þátt í eða leiða umræðu meðal unglinga er þess vegna mikilvægt að fylgjast með umræðunni eins og hún er á hverri stundu.

Hér að neðan er stuttur listi af efni sem gott er að skoða. Fyrir þetta námskeið mælumst við til þess að þú eyðir um klukkustund í að kynna þér efnið. Þú berð þó sjálf/t/ur ábyrgð á náminu þínu og ákveður hvað þú þarft að að fara í gegnum mikið af efni. Hafðu þó í huga að markmiðið er ekki að kunna eða vita allt. Stundum er alveg jafn gott að vita ekki svörin við spurningum sem upp koma svo þú og hópurinn sem þú leiðir getið komist að niðurstöðu saman gegnum umræðu og upplýsingaöflun.

Á vefnum sjukast.is er að líka finna allskonar fræðslu um:

Heilbrigð sambönd

https://www.sjukast.is/content/heilbrigd-sambond

Mörk

https://www.sjukast.is/content/mork

Traust

https://www.sjukast.is/content/traust

Óheilbrigð sambönd og óheilbrigð hinsegin sambönd

https://www.sjukast.is/content/oheilbrigd-hinsegin-sambond

Af hverju fólk fer ekki úr ofbeldissamböndum

https://www.sjukast.is/content/af-hverju-fer-folk-ekki-ur-ofbeldisfullum-sambondum

og margt margt fleira