Eitt af meginhlutverkum Ofbeldisforvarnaskólans er að þróa námsefni til forvarna gegn ofbeldi.
Við leggjum áherslu á að efnið sé fjölbreytt, aðgengilegt og skemmtilegt í notkun – hvort sem það er ætlað kennurum, starfsfólki félagsmiðstöðva eða öðrum sem vinna með börnum og ungmennum.
Námsefnið er hannað með það að markmiði að auðvelt sé að tileinka sér það án mikils undirbúnings. Skýrar en stuttar kennsluleiðbeiningar fylgja, þannig að allir með reynslu eða menntun í vinnu með börnum geta nýtt sér það á skilvirkan hátt.
Hvenær sem því er viðkomið er námsefni og annað sem gert er því til stuðnings gert aðgengilegt í opnum aðgangi og er notkun þess án endurgjalds.
B4H8 – leikir og verkefni
Forvarnaefni gegn hatursorðræðu – Fjöldin allur af leikjum, umræðukveikjum og verkefnum ásamt kennsluleiðbeiningum. Gerð námsefnisins var styrkt af Erasmus+ og efnið er því allt í opnum aðgangi
#B4H8 – Handbók
Skemmtilega upp sett handbók á íslensku um mikilvægustu atriðin sem hafa þarf í huga til þess að leiða hóp ungmenna í fræðslu og forvörnum gegn haturs orðræðu. Gerð námsefnisins var styrkt af Erasmus+ og efnið er því allt í opnum aðgangi
Eggplantbot
Leikurinn er gagnvirkt verkfær sem gefur ungu fólki færa á að spjalla um nekratmyndir og samskipti á netinu. Markmiðið er að hjálpa þeim að átta sig á mikilvægi (og 🔥) samþykkis og virðingar fyrir mörkum. Leiknum er auðvelt að deila og talar ensku, sænsku, finnsku og íslensku.
Geltu
Myndin fjallar um unglings stúlkuna Blæ sem verður fyrir haturs orðræðu í skólanum og á netinu eftir að hún kemur út sem trans. Myndinni er ætlað að vera viðbragð við auknu ofbeldi í garð hinsegin fólks og aukinni vanlíðan ungmenna. Myndin var valin barna- og unglingamynd ársins á Eddunni 2025. Leikstjórar eru Sigríður Láretta Jónsdóttir og Sol Berruezo Pichon-Rivière. Framleiðendur eru NyArk Media og Ofbeldisforvarnarskólinn. Geltu! er hluti af #B4H8 verkefninu um forvarnir gegn hatursorðræðu. Umræðu verkefni út frá myndinni má einnig finna hér, sem og textaðar útgáfur myndarinnar.
Netnámskeið
Heils- eða hálfsdagsnámskeið þar sem umræður, leikir og verkefni eru nýtt til að styrkja þekkingu starfsfólks á viðfangsefninu auk þess að gefa verkfæri til að leiða ungmennahópa í gegnum námsefnið. Á námskeiðum er hægt að velja áherslu á mismunandi þemu s.s. gagnrýna hugsun um klám og klámvæðingu, karlmennsku og tilfinningalæsi eða heilbrigð sambönd og samskipti. Einnig er þó hægt að spinna þemum saman og fá í námskeiðinu grynnri kynningu á öllum þremur.
Námskeið
Boðið er upp á tvö námskeið sem sérstaklega eru ætluð kennurum, starfsfólki félagsmiðstöðva, þjálfurum og öðrum sem vinna með börnum.
Áhorfendanálgun á ofbeldisforvarnir fyrir starfsfólk er námskeið sem býður upp á heildstæða nálgun sem mælt er með að taka fyrir í að lágmarki þrjú 90 mínútna skipti með hverjum hóp. Aðferðin byggir á innlögn námsefnis, umræðum og leikjum. Á námskeiðinu lærir starfsfólk að leiða ungmennahóp í gegnum námsefnið.
Námsaðferðir óformlegs náms í ofbeldisforvörnum er safn leikja, verkefna og umræðukveikja sem nýta má í ofbeldisforvörnum, hvort sem er í skipulögðu skólastarfi eða í óformlegu námsumhverfi, eins og í æskulýðs- og íþróttastarfi.
Boðið er bæði upp á heilsdagsnámskeið í staðnámi og einnig netnám þar sem nemendur geta tekið þátt í 2 klukkustunda leikja- og umræðutímum sem haldnir eru nokkrum sinnum á önn.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar og kynningar eru í boði fyrir unglinga og fullorðna með áherslu á mismunandi tegundir ofbeldis og rót þess. Hægt er að fá kynningu á leikjum, verkefnum og umræðukveikjum tengdum kynbundnu ofbeldi og áreitni.
Við sýnum hagnýtar leiðir til að opna umræðuna, skoða málefnin og ígrundunarleiðir. Sérstök áhersla er lögð á áhorfendanálgun í forvörnum gegn ofbeldi og áreitni.
Rannsóknir hafa sýnt að:
Þátttakendur öðlast þekkingu á óviðeigandi hegðun.
Þeir þróa aukna færni og sjálfstraust til að bregðast við aðstæðum.
Þeir fá betri skilning á áhrifum lítilla samfélaga, eins og skóla eða vinnustaða, til að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi og áreitni.
Fyrirlestrar eru frá 40 mínútum upp í 2 klukkustundir.
Starfsdagar
Við skipuleggjum starfsdaga fyrir fyrirtæki og stofnanir með áherslu á ofbeldisforvarnir og jákvæða menningu á vinnustöðum. Markmiðið er að starfsfólk nýti fræðsluna bæði í starfi og í einkalífi.
Starfsdagarnir eru skemmtilegir og fræðandi með leikjum og hópvinnu. Í okkar hópi eru sérfræðingar með menntun og reynslu á sviðum eins og félagsráðgjöf, viðburðastjórnun, leiklist og íþróttum, auk samstarfs við ríki og sveitarfélög.
Við vinnum náið með skipuleggjendum á hverjum vinnustað, framkvæmum þarfagreiningu og mótum dagskrá sem tekur mið af þörfum viðkomandi vinnustaðar.
Hafðu samband í pósti á samskipti(at)ofbeldisforvarnir.is eða síma 781-8189 til að bóka starfsdag fyrir þitt fyrirtæki.